
Efna og yfirborðsgreiningar
BET yfirborðsflatarmálsmælir – Micromeritics TriStar 3000
Micromeritics TriStar 3000 mælir sérvirkt yfirborðsflatarmál (BET) og gropueiginleika duftsýna og gljúpra efna með ásogi niturs við hitastig fljótandi niturs (77 K). Tækið greinir allt að þrjú sýni samtímis. Við hlið þess er VacPrep 061 afgösunarstöð þar sem sýni eru hreinsuð undir lofttæmi og hita fyrir mælingu. Mælingin hentar meðal annars fyrir hvata, steinefni og jarðefni, keramík, málmduft, kolefnisefni, lyfjaduft og ásogsefni. Niðurstöðurnar nýtast í rannsóknum, vöruþróun og gæðaeftirliti.
Bóka hér
08:00:00 - 16:00:00
Tæknilýsing
Mælistöðvar: 3 sýni mæld samtímis, auk sérstaks Po-rörs fyrir mettunarþrýsting
Ásogsgas: köfnunarefni (N₂ 5.0) við 77 K; helíum (He 5.6) til mælingar á tómarúmi (free space)
Greiningaraðferðir: eins- og fjölpunkta BET, Langmuir, heilir ásogs- og afsogsferlar, t-plot, BJH gropustærðardreifing (ásog og afsog), heildargropurúmmál
Gropustærðarsvið: u.þ.b. 3–300 nm (mesogropur), takmörkuð vísbending um örgropur
Sýnarör: 3/8" (9,5 mm) með jafnhitakápu (isothermal jacket)
Sýnamagn: venjulega 0,1–1 g, háð yfirborðsflatarmáli efnisins
Sýnaundirbúningur: VacPrep 061 afgösunarstöð, 6 stöðvar, lofttæmi og hitun (venjulega 200 °C), N₂ fylling eftir afgösun
Mælitími: um 1,5 klst. fyrir 5 punkta BET
Niðurstöður: ásogsferill og BET samantekt, útflutningur í Excel eða PDF
Kröfur til sýna: þurrt duft eða smáar agnir sem þola lofttæmi og afgösunarhita
