10 ára afmæli Atmonia fagnað
Dagur Ingi Ólafsson
Verkefnastjóri

Atmonia var stofnað árið 2016 á grunni rannsókna frá Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöð Íslands, með djarfa hugmynd að leiðarljósi: að framleiða ammoníak, undirstöðu áburðar og eldsneytis beint úr lofti, vatni og rafmagni. Í köfnunarefnisrafgreini Atmonia gerist þetta í einu skrefi, við stofuhita og venjulegan þrýsting, án þess að framleiða þurfi og geyma vetni fyrst.
Atmonia hefur verið með Tæknisetri frá upphafi og var því vel til hæfi að fundurinn yrði opnaður af Guðbjörgu Hrönn, framkvæmdastjóra Tækniseturs. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, flutti ávarp áður en Helga Dögg Flosadóttir fór yfir sögu fyrirtækisins. Seinna fóru fram pallborðsumræður sem eðlisfræðingurinn Ottó Elíasson stýrði, en þau Valdimar Halldórsson, fjárfestingastjóri Kríu, Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar Landsvirkjunar og Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskólans ræddu um getu Íslands til að framleiða eigin áburð og eldsneyti.
Margt er á döfinni hjá Atmonia, en meira má lesa um það hér.
Við óskum Atmoniu til hamingju með afmælið!


