Verkfræðinemar við Háskóla Íslands heimsækja Tæknisetur
Þyri Erla L. Sigurðardóttir
Verkefnastjóri

Annars árs nemar í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands heimsóttu Tæknisetur þann 15. október síðastliðinn. Markmið heimsóknarinnar var að kynna nemendum starfsemi Tækniseturs og veita þeim innsýn i þær aðferðir og prófanir sem notaðar eru við rannsóknir á steinefnum.
Í heimsókninni fengu nemendur kynningu á helstu steinefnaprófunum sem framkvæmdar eru á rannsóknarstofu Tækniseturs og kynntust þeim tækjum og búnaði sem nýttur er við rannsóknirnar. Nemendur fengu einnig tækifæri til að spreyta sig á ýmsum verkefnum og prófunaraðferðum undir leiðsögn starfsfólks.
Heimsóknin veitti nemendum tækifæri til að tengja fræðilega þekkingu við hagnýta framkvæmd og öðlast betri skilning á mikilvægi efnisprófana í mannvirkjagerð. Með heimsókninni fengur nemendur því innsýn í þá vinnu sem liggur að baki mati á gæðum og eiginleikum byggingarefna.
Við þökkum nemendum og kennurum Háskóla Íslands kærlega fyrir komuna og ánægjulega heimsókn!


