Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður
jún 2026 – í gangiÍ gangiHringrásarhagkerfiEfnistækniMannvirki

Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður

Lýsing

Verkefnið er flokkað með áherslu á byggingarefni, en áherslan er ekki síður á losun CO₂ og tækninýjungar í mannvirkjagerð sem draga úr umhverfisáhrifum og tryggja endingargóða steypu.

Markmiðið er að minnka sementsmagn í steypu og nota mismunandi íauka í staðinn. Þar með væri hægt að draga úr losun CO₂ í byggingariðnaði, en sementsframleiðsla losar mikið CO₂.

Byggingarreglugerð kveður á um að sementsmagn í útisteypu skuli vera a.m.k. 300 kg/m³ og að lágmarki 350 kg/m³ í útisteypu sem verður fyrir miklum veðrunaráhrifum. Markmið þessa verkefnis er að rannsaka hvort og hve mikið megi draga úr notkun á sementi, án þess að skerða eiginleika (styrk og endingu) steypu. Í þessu sambandi má benda á að núna sendur yfir regluleg endurskoðun á byggingarreglugerð, m.a. með tilliti til sementsmagns, frostþolsprófana á steypu með flugöskusementi og hvort leyfa eigi virknistuðla og gildi fyrir þá. Steypa með flugöskusementi stenst yfirleitt ekki frostþíðu prófun eins og hún er skilgreind í byggingarreglugerð.

Svo draga megi úr sementsmagni í steypu án þess að skerða eiginleika hennar þarf hluti sementsefju að haldast óbreyttur. Það verður gert með því að bæta upp sements minnkunina með fínmöluðum íauka. Íaukann þarf að mala a.m.k. niður í sömu kornastæð og sement. Nefna má að fínmalað íslenskt basalt hefur æskilega eiginleika til íblöndunar í steypu, auk þess sem kolefnispor þess er mjög lágt.

Rannsóknarspurningarnar eru tvær, annars vegar hve mikið er hægt að minnka sementsmagn í steypu og nota íauka í staðinn án þess að skerða gæði og endingu og svo hins vegar hversu mikið lækkar kolefnisspor slíkrar steypu. Árangur verkefnisins verður metin út frá svörunum. Lokaafurð verkefnisins verður endingagóð C30 steypa með um 160 kg af sementi og um 160 kg af íauka, í stað 320 kg af sementi í m³ steypu.

Hlutverk Tækniseturs

Verkefnastjórnun, framkvæmd rannsókna og úrvinnsla.

Þakkir

Verkefnið er styrkt af HMS Aski Mannvirkjasjóð, ásamt vinnuframlagi frá öðrum þátttakendum.

Tímabil

jún 2026 – í gangi

Samstarfsaðilar

  • Dr. Ólafur Sveinn Haraldsson, Vegaerðin og Háskóli Íslands
  • Einar Einarsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
  • Dr. Sigríður Bjarnadóttir, BM Vallá/Hornsteinn
  • Eggert Guðmundsson, Vista Verkfræðistofa

Tengiliður

Dr. Gísli Guðmundsson

gisli@taeknisetur.is