
Umhverfisvæn brúarsteypa
Lýsing
Aukin umhverfisvitund og aðgerðir í loftslagsmálum eru nauðsynlegar til þess að sporna gegn hækkun hitastigs á jörðinni. Sements- og steypuiðnaðurinn losar mikið af CO₂ út í andrúmsloftið. Þessi iðnaður vinnur nú hörðum höndum að því að minnka kolefnisspor steypu. Íslensk brúarsteypa er með tiltölulega mikið af sementi í m3 af steypu og þar af leiðandi með hátt kolefnisspor. Í dag eru lausnir í boði til þess að draga úr sementmagni í t.d. brúarsteypu með því að nota íauka í stað sements. Íaukar eru fímalað efni bæði náttúrulegt og afurðir úr iðnaðarferlum.
Markmið með þessu verkefni er að aðlaga brúarsteypu Vegagerðarinnar að steypu með lágu kolefnisspori, án þess að hafa áhrif á steypuframleiðslu, steypugæði og endingu mannvirkja.
Hlutverk Tækniseturs
Þakkir
Verkefnið er styrkt af Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar.
Tímabil
jún 2025 – í gangi
Samstarfsaðilar
- Einar Einarsson – Sjálfstætt starfandi
- Dr. Sigríður Ósk Bjarnadóttir – BM Vallá
- Dr. Ólafur Sveinn Haraldsson – Vegagerðin