Umhverfisvæn steypa til framtíðar
sep 2026 – í gangiÍ gangiHringrásarhagkerfiEfnistækniMannvirki

Umhverfisvæn steypa til framtíðar

Lýsing

Auknar kröfur um sjálfbærni og lægra kolefnisspor í opinberum og einkareknum framkvæmdum eru að verða ráðandi þáttur í mannvirkjagerð á Íslandi. Á sama tíma eru gerðar óbreyttar kröfur um framkvæmdatíma, kostnað, gæði og fyrirsjáanleika. Þetta hefur skapað markað þar sem lausnir með lægra kolefnisspori eru aðeins raunhæfar ef þær uppfylla jafnframt kröfur um skilvirka framkvæmd.

Sement er valdur að 90% kolefnisspors steypu og auk þess er stærsti hluti mannvirkja á Íslandi búinn til úr steypu. Því er verulegur umhverfislegur ávinningur af því að draga úr sementsmagni. Þrátt fyrir að sýnt hafi verið fram á að unnt sé að draga verulega úr sementsmagni í steypu hefur umhverfisvæn steypa almennt ekki verið tekin upp í framkvæmd. Ástæðan er fyrst og fremst framkvæmdatengd áhætta, einkum hægari hörðnun og lengri tími í steypumótum sem getur haft áhrif á verkáætlanir og kostnað.

Þessi staða hefur skapað kerfisbundna hindrun í innleiðingu umhverfisvænnar steypu.

Byggingarmarkaðurinn stendur því frammi fyrir tvíþættri áskorun: Að draga úr kolefnisspori mannvirkja án þess að raska skilvirkni í framkvæmd.

Markmið verkefnisins er að ryðja þessari hindrun úr vegi með þróun umhverfisvænnar steypu sem:

  • Dregur úr sementsmagni um 20–30% sem samsvarar 18–27% lækkun kolefnisspors.

  • Uppfyllir kröfur um burðarþol og endingu.

  • Nær sambærilegum byrjunarstyrk og mótatíma og hefðbundin steypa.

Verkefnið miðar þannig að þróun nýrra verkferla í efnisvali og framkvæmd þar sem umhverfisvæn steypa verður raunhæfur valkostur án aukinnar framkvæmdatengdrar áhættu. Í verkefninu er hugtakið „án þess að lengja framkvæmdatíma“ skilgreint með mælanlegum viðmiðum um byrjunarstyrk steypunnar og mótatíma. Stefnt er að því að þróuð steypa nái sambærilegum byrjunarstyrk og viðmiðunarsteypa þannig að losun móta og framvinda verka haldist óbreytt.

Verkefnið byggir á notkun íslenskra íauka með lágt kolefnisspor, einkum móbergs og basaltsmélu, auk innflutts flugöskusements, sem grunnrannsóknir hafa þegar verið gerðar á (Ciuperca og Berke, 2023; Gísli Guðmundsson og Kjartan Björgvin Kristjánsson, 2023 og 2024; Novakova o.fl., 2023; Skjeggerud, 2020; Wallevik o.fl., 2014). Áhersla er lögð á að samþætta efnisþróun við kröfur markaðarins, þar sem hörðnun og byrjunarstyrkur eru skilgreindir sem lykilþættir jafnhliða kröfum um öryggi og langtímaendingu. Með kerfisbundnum prófunum verður staðfest hvernig lækkun sementsmagns hefur áhrif á hörðnun, mótatíma og langtímaeiginleika steypu við íslenskar aðstæður, þar á meðal vinnanleika, frost/þíðuálag og tæringarhættu bendistáls. Verkefnið mun skila skilgreindum steypulausnum og viðmiðum sem steypustöðvar geta framleitt, ráðgjafar geta nýtt í hönnun og verktakar notað í framkvæmd án aukinnar áhættu, og þannig skapað forsendur fyrir breyttu efnisvali og minni þörf fyrir íhaldssama hönnun.

Lausnir verkefnisins verða sannreyndar í raunverulegu samgöngumannvirki í samstarfi við Vegagerðina, þar sem mæld verður styrkleikaþróun, langtímahegðun og kolefnisspor með lífsferilsgreiningu (e. Life Cycle Assessment, LCA). Þannig verður bilið milli rannsóknar og framkvæmdar brúað með mælanlegum og markaðshæfum niðurstöðum.

Verkefnið miðar að því að fjarlægja helstu markaðs- og innleiðingarhindrun umhverfisvænnar steypu og skapa forsendur fyrir lækkun kolefnisspors mannvirkja án þess að fórna tíma, kostnaði, gæðum og öryggi.

Án slíkrar samþættrar þróunar er líklegt að lausnir með lægra kolefnisspor verði áfram taldar fela í sér framkvæmdatengda áhættu og því síður valdar. Verkefnið er lykilskref í að breyta umhverfisvænni steypu úr fræðilegum möguleika í raunhæfa framkvæmdalausn.

Hlutverk Tækniseturs

Verkefnstjórnun, framkvæmd rannsókna og úrvinnsla.

Þakkir

Verkefnið er styrkt af HMS Aski Mannvirkjasjóð

Tímabil

sep 2026 – í gangi

Samstarfsaðilar

  • Einar Einarsson – Sjálfstætt starfandi
  • Dr. Sigríður Ósk Bjarnadóttir – BM Vallá/Hornsteinn
  • Dr. Ólafur Sveinn Haraldsson – Vegagerðin, Háskóli Íslands
  • Dr. Dórótea Höeg Sigurðardóttir - Háskóli Íslands

Tengiliður

Dr. Gísli Guðmundsson

gisli@taeknisetur.is